images/toplogo_3.jpg
Sendu okkur þínar uppskriftir
Gallerí
Bændur
Leitarvél:

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu
spennandi greinar,
uppskriftir, o.fl

Netfang:

Nanna
Alma Maria

 Bændur | Hvað er ylrækt - vörur | Hvað er útirækt - vörur | Vistvæn ræktun | Lífræn ræktun 


· Auðsholt
· Brún
· Flúðasveppir
· Flúðajörfi
· Friðheimar
· Garðyrkjustöð Sigrúnar
· Gróður
· Gufuhlíð
· Heiðmörk
· Hveratún
· Hveravellir
· Jörfi
· Laugaland
· Laugarland Flúðum
· Melar
· Reykjaflöt
· Silfurtún
· Sólbyrgi
· Varmaland
· Varmalækur
· Víðigerði
· Ösp
Heiðmörk

Garðyrkjustöðin Heiðmörk ehf er í eigu hjónanna Ómars Sævarssonar og Sigurlaugar Angantýsdóttur. Ómar er fæddur og uppalinn á Heiðmörk og hefur því alist upp við garðyrkju allt sitt líf. Hann byrjaði sjálfur grænmetisrækt árið 1985 en þau hjónin keyptu garðyrkjustöðina Heiðmörk af foreldrum Ómars árið 1994. Sigurlaug er kennari að mennt og kennir í Reykholti auk þess sem hún heldur utan um bókhaldið í garðyrkjustöð þeirra hjóna.

Árið 2003 stækkuðu Ómar og Sigurlaug við sig og keyptu Birkiflöt við hliðina á Heiðmörk og reka allt saman undir merkjum Garðyrkjustöðvarinnar Heiðmerkur ehf. Ómar og Sigurlaug rækta steinselju og tómata, kirsuberjatómata, bufftómata og hefðbundna tómata. Þau eru jafnframt einu íslensku garðyrkjubændurnir sem rækta bufftómata og hófu ræktun á þeim árið 2008. Enn sem komið er eru bufftómatarnir einungis ræktaðir yfir sumartímann. Þeir eru stærri og kjötmeiri en aðrir tómatar, þéttari í sér og ekki eins safamiklir. Ómar segir þá henta einstaklega vel í matargerð, til dæmis á hamborgarann því bufftómaturinn sé það stór að ein sneið dugi á allan borgarann. Eins renni safinn ekki út um allt.

Gróðurhúsin í Heiðmörk þekja um 5000 fermetra. Þau eru hituð upp með hveravatni en hverasvæði er í nágrenni garðyrkjustöðvarinnar. Býflugur sjá um að frjóvga tómatana og notast Ómar og Sigurlaug við lífrænar varnir í stað eiturefna. Einnig er ferskt neysluvatn notað til að vökva plönturnar í stað þess að kæla hitaveituvatn.
Árlega framleiða Ómar og Sigurlaug um 120 tonn af tómötum og 100.000 búnt af steinselju. Tómatarnir eru tíndir þrisvar í viku og handflokkaðir í neytendapakkningar. Þeir eru svo sendir samdægurs frá garðyrkjustöðinni og eru komnir í verslanir einungis nokkrum klukkutímum eftir að þeir eru tíndir.

Smellið á myndirnar til að stækka þær og skoða betur

Ræktun | Grænmestisdagatalið | Hollusta og næring | Meðhöndlun græmetis | Tómatategundir | Uppskriftir | Vissir þú | Árstíðarsalat | Gratín | Media | Hátíðarrauðkál

Skoðanakönnun

Hver eftirfarandi finnst þér best ?


Sjá hér myndir tómötum
Íslenskt.is




islenskt.is | Sölufélag Garðyrkjumanna | vefstjori@islenskt.is