|
|
|  |
|
|
| | Laugarland Flúðum |
 Garðyrkjustöðvarnar Laugarland og Land og synir á Flúðum eru fjölskyldufyrirtæki en þær eru reknar af feðgunum Emil Gunnlaugssyni og Magnúsi og Rafni Emilssonum. Emil stofnaði garðyrkjustöðina Laugarland árið 1955 en feðgarnir hafa unnið saman að ræktun í um það bil 30 ár.
Um sjö ársverk eru í garðyrkjustöðinni Laugarlandi og þekja gróðurhúsin um 6000 fermetra lands. Í um 5600 fermetrum rækta feðgarnir rósir en á um 300 fermetrum er ræktuð steinselja. Steinseljuræktunin er vistvæn og fer fram allt árið um kring undir raflýsingu og eru gróðurhúsin hituð upp með jarðhita. Steinseljan er tínd mánaðarlega og henni pakkað á staðnum en frá garðyrkjustöðinni fara um 1500 búnt á viku til neytenda.
Garðyrkjustöðin Laugarland er jafnframt eini ræktandi fjallasteinselju á landinu. Feðgarnir hófu ræktun á fjallasteinselju árið 2008 til að auka við fjölbreytileika ræktunarinnar á Laugarlandi og senda nú um 500 búnt á viku af henni til neytenda.
Fjallasteinseljan er frábrugðin hefðbundinni steinselju að því leyti að blöðin eru flöt og glansandi og er fjallasteinseljan bragðmeiri en sú venjulega og að sumra dómi fallegri. Fjallasteinseljan er einnig fljótvaxnari, færri blöð eru tínd í einu en tína þarf hálfs mánaðarlega.
Smellið á myndirnar til að stækka þær og skoða betur
| |
|
|
|
|
|
|
Skoðanakönnun Hvert eftirfarandi finnst þér best ? |
|
Íslenskt.is

|
|
|