images/toplogo_3.jpg
Sendu okkur þínar uppskriftir
Gallerí
Bændur
Leitarvél:

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu
spennandi greinar,
uppskriftir, o.fl

Netfang:

Nanna
Alma Maria

 Bændur | Hvað er ylrækt - vörur | Hvað er útirækt - vörur | Vistvæn ræktun | Lífræn ræktun 


· Auðsholt
· Brún
· Flúðasveppir
· Flúðajörfi
· Friðheimar
· Garðyrkjustöð Sigrúnar
· Gróður
· Gufuhlíð
· Heiðmörk
· Hveratún
· Hveravellir
· Jörfi
· Laugaland
· Laugarland Flúðum
· Melar
· Reykjaflöt
· Silfurtún
· Sólbyrgi
· Varmaland
· Varmalækur
· Víðigerði
· Ösp
Gufuhlíð

Hjónin Helgi Jakobsson og Hildur Ósk Sigurðardóttir reka garðyrkjustöðina Gufuhlíð í Reykholti. Þar rækta þau agúrkur og framleiða um 430 tonn á ári af gúrkum.

Gufuhlíð er fjölskyldufyrirtæki. Áður höfðu foreldrar Helga, Jakob Helgason og Birna Guðmundsdóttir, stundað garðyrkju á staðnum frá árinu 1965 en Helgi og Hildur komu inn í reksturinn árið 1997. Síðan hefur stöðin verið byggð upp, gróðurhúsin endurnýjuð og stækkuð og þekja nú um 3800 fermetra lands. Einnig var raflýsingu komið upp í öllum gróðurhúsunum svo nú er stunduð ræktun árið um kring en áður hafði einungis verið ræktað yfir sumartímann.

Helga og Hildi Ósk er umhugað um gæði framleiðslunnar. Þau stefna á að auka bæði magn og gæði ræktunarinnar í Gufuhlíð og hafa nú um tíma gert tilraunir með milliplöntun með það að markmiði að aldrei komi bil í uppskeruna.

Ræktunin í Gufuhlíð er vistvæn, gúrkurnar eru ræktaðar í vikri og er lífrænum vörnum beitt á plönturnar. Gróðurhúsin eru hituð upp með hveravatni en jarðhiti er á svæðinu og hefur einnig verið borað eftir heitu vatni á jörðinni

Gúrkurnar í Gufuhlíð eru tíndar sex daga vikunnar, þeim pakkað á staðnum og fara sendingar þrisvar í viku frá garðyrkjustöðinni til neytenda.

Smellið á myndirnar til að stækka þær og skoða betur

Ræktun | Grænmestisdagatalið | Hollusta og næring | Meðhöndlun græmetis | Tómatategundir | Uppskriftir | Vissir þú | Árstíðarsalat | Gratín | Media | Hátíðarrauðkál

Skoðanakönnun

Hver eftirfarandi finnst þér best ?


Sjá hér myndir tómötum
Íslenskt.is




islenskt.is | Sölufélag Garðyrkjumanna | vefstjori@islenskt.is