images/toplogo_3.jpg
Sendu okkur þínar uppskriftir
Gallerí
Bændur
Leitarvél:

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu
spennandi greinar,
uppskriftir, o.fl

Netfang:

Nanna
Alma Maria

 Bændur | Hvað er ylrækt - vörur | Hvað er útirækt - vörur | Vistvæn ræktun | Lífræn ræktun 


· Auðsholt
· Brún
· Flúðasveppir
· Friðheimar
· Garðyrkjustöð Sigrúnar
· Gróður
· Gufuhlíð
· Heiðmörk
· Hveratún
· Hveravellir
· Jörfi
· Laugaland
· Laugarland Flúðum
· Melar
· Reykjaflöt
· Silfurtún
· Sólbyrgi
· Varmaland
· Varmalækur
· Víðigerði
· Ösp
Friðheimar

Garðyrkjubændurnir Knútur Rafn Ármann og kona hans Helena Hermundardóttir eru bæði úr Reykjavík en fluttu upp í sveit þegar þau voru 25 ára. Þau keyptu Friðheima í Reykholti árið 1995 og sameinuðu þar hrossabúskap og garðyrkju.
Gróðurhúsin á Friðheimum þekja um 3000 fermetra. Upphaflega ræktuðu Knútur og Helena tómata, paprikur og gúrkur en árið 2002 settu þau upp lýsingu í gróðurhúsin og snéru sér eingöngu að tómatarækt. Með uppbyggingu á gróðurhúsunum vildu þau auka úrvalið á tómötum sem fást hér á landi og í dag rækta þau þrjár tegundir af tómötum. Hefðbundna tómata, plómutómata og konfekttómata. Þau eru jafnframt einu garðyrkjubændurnir sem rækta plómutómata allt árið

Á Friðheimum reka Knútur og Helena hestamiðstöð þar sem þau stunda hrossarækt, halda hestasýningar og sinna reiðkennslu. Gestum hestasýninganna gefst einnig tækifæri á að skoða inn í gróðurhúsin og sjá hvernig tómatarækt gengur fyrir sig. “Okkur finnst mikilvægt að fólk fái að sjá hvaðan maturinn kemur,” segir Knútur. “Hingað koma bæði íslenskir og erlendir gestir og fræðast um það hvernig hægt er að rækta grænmeti allt árið í okkar kalda landi þar sem lítið er sólarljósið.”

Ræktunin á Friðheimum er vistvæn. Gróðurhúsin eru hituð upp með jarðhita og lífrænar varnir eru notaðar gegn meindýrum. Tómatarnir eru allir flokkaðir og pakkaðir á staðnum og merktir Friðheimum

Smellið á myndirnar til að stækka þær og skoða betur

Ræktun | Grænmestisdagatalið | Hollusta og næring | Meðhöndlun græmetis | Tómatategundir | Uppskriftir | Vissir þú | Árstíðarsalat | Gratín | Media | Hátíðarrauðkál

Skoðanakönnun

Hvaða árstíð finnst þér skemmtilegust ?


Sjá hér myndir tómötum
Íslenskt.is




islenskt.is | Sölufélag Garðyrkjumanna | vefstjori@islenskt.is