|
|
|  |
|
|
| | Varmalækur |
 Ragnheiður Karlsdóttir þekkir garðyrkjustörfin vel en hún ólst upp á Varmalæk á Flúðum. Þar vann hún við hlið foreldra sinna, Karls Gunnlaugssonar og Guðrúnar Sveinsdóttur að grænmetisrækt en þau sofnuðu Garðyrkjustöðina Varmalæk árið 1974. Ragnheiður gekk inn í reksturinn árið 1998 og tók alveg við honum fjórum árum síðar og rekur nú garðyrkjustöðina ásamt manni sínum, Smára Vignissyni.
Á Varmalæk rækta Ragnheiður og Smári aðallega tómata, bæði venjulega og konfekttómata og einnig eitthvað af gúrku. Gróðurhúsin þekja um 1500 fermetra og er ársframleiðsla á tómötum í kringum 38 tonn. Ræktunin á Varmalæk er vistvæn. Tómatarnir og gúrkurnar eru ræktuð í vikri, býflugur sjá um að frjóvga plönturnar og lífrænum vörnum er beitt á óværu. Gróðurhúsin eru einnig hituð upp með hveravatni.
Ragnheiður og Smári notast ekki við raflýsingu allt árið. Plöntunum er því skipt út í nóvember og sáð að nýju í desember og er hafist handa við að tína fyrstu tómatana og gúrkurnar í apríl. Frá upphafi hefur garðyrkjustöðin á Varmalæk verið fjölskyldufyrirtæki og í dag vinna börn Ragnheiðar og Smára með þeim á sumrin í pökkun og tínslu. Nóg er að gera en tómatarnir eru tíndir þrisvar í viku og eins gúrkurnar. Öllu grænmetinu er síðan pakkað á staðnum og það sent samdægurs til neytenda svo ferskleikinn er tryggður.
Smellið á myndirnar til að stækka þær og skoða betur | |
|
|
|
|
|
|
Skoðanakönnun Hvert eftirfarandi finnst þér best ? |
|
Íslenskt.is

|
|
|