images/toplogo_3.jpg
Sendu okkur þínar uppskriftir
Gallerí
Bændur
Leitarvél:

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu
spennandi greinar,
uppskriftir, o.fl

Netfang:

Nanna
Alma Maria

 Meðhöndlun og geymsla grænmetis 


· Blómkál
· Blaðlaukur
· Gulrætur
· Gúrka
· Hnúðkál
· Hvítkál
· Íssalat
· Jarðarber
· Kartöflur
· Kínakál
· Paprika
· Rauðkál
· Rófur
· Sellerý
· Spergilkál
· Steinselja
· Sveppir
· Tómatar
Gulrætur
Geymsla
 
Gulrætur geymast almennt vel. Best er að geyma þær við 0-2°C og mikinn raka því þeim hættir mjög til að tapa vatni. Þær eiga ekki að standa í birtu því þá verða þær grænar og etýlen (etýlen er lofttegund sem myndast í grænmeti og ávöxtum) gerir þær beiskar á bragðið.
 
Við lengri geymslu er betra að geyma gulrætur lausar í plastfóðruðum kössum heldur en í litlum plaspokum. Við þær aðstæður er ekki eins mikil hætta á að raki þéttist utan á rótunum og valdi votrotnun.
 
Ef einungis á að geyma gulrætur í skamman tíma er ágætt að hafa þær í götuðum plastpokum, þeim sömu og þær eru seldar í. Fylgist vel með því að ekki verði rakaþétting innan í þeim og fjölgið götunum á þeim ef það gerist.
 
Notkun
 
Gulrætur má nota á mjög fjölbreytilegan hátt, bæði hráar eða soðnar og einnig má gera úr þeim gulrótarsafa. Þær eru góðar með flestum köldum og heitum réttum. Henta einkar vel með fiski og fiskréttum og má nota í kökur, súpur og pottrétti, svo eitthvað sé nefnt. Hægt er að leggja þær í kryddlög, brúna í sykri og ofnsteikja, t.d með lambasteik. Einnig er tilvalið að rétta litlum fingrum gulrót sem nasl að narta í.
 
Má frysta gulrætur ?
 
Já, ef þær hafa verið soðnar í 3-4 mínútur. Hins vegar er óþarft að mæla með því, gulrætur eru fáanlegar allt árið á hagstæðu verði.
Ræktun | Grænmestisdagatalið | Hollusta og næring | Meðhöndlun græmetis | Tómatategundir | Uppskriftir | Vissir þú | Árstíðarsalat | Gratín | Media | Hátíðarrauðkál

Skoðanakönnun

Hver eftirfarandi finnst þér best ?


Sjá hér myndir tómötum
Íslenskt.is




islenskt.is | Sölufélag Garðyrkjumanna | vefstjori@islenskt.is