|
|
|  |
|
|
| | Tómatar |
 Geymsla
Tómatar eru ákaflega viðkvæmir fyrir kæliskemmdum og þá má ekki geyma í kæli.
Besti geymsluhiti tómata er 10-12°C. Tómatar sem verða fyrir kæliskemmdum verða fljótt linir og bragðlitlir, því er ekki gott að geyma þá í ísskápnum. Ekki er gott að láta tómata liggja nálægt blaðmeti (salati), gúrkum og öðrum
afurðum. Mjög gott er að geyma tómata oft á eldhúsborðinu því þá getur heimilisfólkið
nartað í einn og einn tómat. Krakkar borða grænmeti líka miklu frekar ef það er haft fyrir framan þau.
Notkun
Flestir vita hvernig nota á tómata, þá má nota á svo margvíslegan hátt að hér
er vart rými nema til að minnast á það allra helsta. Þeir henta vel í hrásalat,
ofan á brauð og í súpur og sósur. Þeir eru góður hráir en einnig má sjóða þá og
steikja eða baka þá með fyllingu. Margir kunna best að meta tómata í ítölsku hrásalati
með söxuðum lauk og gúrkusneiðum í estragonediki sem graslauk er stráð yfir. Auðvelt er að afhýða þá þegar búið er að dýfa þeim í sjóðandi vatn í 20-30 sekúndur. Hægt er að sjóða niður græna tómata.
Má frysta tómata?
Já, en hafa verður í huga að eftir frystingu er einungis gott að nota þá í soðna
rétti á sama hátt og niðursoðna tómata.
Hvaða hluta er hægt að borða ?
Allur tómaturinn er ætur nema bikarblöðin sem er ávallt búið að taka af íslenskum
tómötum áður en þeir koma í verslanir.
|
|
|
|
|
|
|
Skoðanakönnun Hvert eftirfarandi finnst þér best ? |
|
Íslenskt.is

|
|
|