|
|
|  |
|
|
| | Sellerý |

Geymsla
Besti geymsluhitinn er 0-2°C. Sellerí er mjög geymsluþolið og sé það geymt í réttu hitastigi getur það geymst
í rúmlega 2 vikur við kjöraðstæður. Sellerí hættir mjög til að tapa vatni og þar
með þyngd og þarf því að vera í miklum raka. Passið því að geyma það í plasti
eða þeim umbúðum sem það er selt í.
Notkun
Sellerí er afbragðsmegrunarfæði, það er ekki mikil orka í máltíð sem samanstendur
af sellerí, kotasælu og tómatsafa. Einnig má hafa sellerí í allar gerðir af hrásalati,
meðal annars er það mikilvægt hráefni í Waldorf-salat. Það má auk þess sjóða eða
smörsteikja það en þannig bragðast það afar vel með lambakjöti eða fiski. Sellerí
hefur þó nokkuð verið notað í ídýfur nú í seinni tíð.
Má frysta sellerí?
Já, en ekki er víst að öllum líki það eftir frystingu ef það er notað í salat.
Hins vegar heppnast frysting vel ef nota á sellerí í soðna rétti, þá er það snoggsoðið
fyrir frystingu. Best er að sjóða það eða steikja um leið og það er tekin úr frystinum.
Hvaða hluta má borða ?
Blaðstilkarnir eru losaðir hver frá öðrum og ½ cm skorinn af hvorum enda. Ef
styrktarvefurinn er mjög trefjakenndur er hann fjarlægður.
|
|
|
|
|
|
|
Skoðanakönnun Hvert eftirfarandi finnst þér best ? |
|
Íslenskt.is

|
|
|