Geymsla
Rófur þarf að geyma í kæli. Besti geymsluhiti er 0-2°C. Rófum er hætt við að tapa vökva, því er best að sveipa þær plastfilmu eða geyma
þær í poka.
Notkun
Gulrófu má nýta á ýmsan hátt, bæði hráa og soðna. Hún er skorin í sneiðar eða
teninga til að nota í súpur eða pottétti. Einnig er hún tilvalin til að rétta krökkum að narta í. Soðnar gulrófur eru bornar fram í sneiðum eða teningum sem meðlæti eða hafðar
í rófustöppu með saltkjöti, saltfiski og sviðum, svo eitthvað sé nefnt. Þær eru
líka góðar með lambasteik eða „roast beef“ – þykkar sneiðar eru penslaðar með
feiti og látnar í fatið síðasta klukkutímann í steikingunni.
Hægt er að fríska upp á sneiðar af linum rófum með því að leggja þær í ísvatn
í 30 mínútur. Eitthvað af vítamínum tapast þó við þetta.
Er hægt að fyrsta gulrófu?
Gulrófur eru fáanlegar allt árið, þannig að ekki verður séð að þörf sé á að frysta
þær. Auk þess henta rófur ekki til frystingar eins og þær koma fyrir, en hægt er að frysta þær sem stöppu eða í teningum. Þó
er nokkuð víst að árangurinn verður ekkert sérstakur, því þær verða vatnskenndar
og bragðvondar eftir frystingu í samanburði við ferskar rófur.
Hvaða hluta er hægt að borða ?
Allt nema hýðið.