|
|
|  |
|
|
| | Sveppir |
 Geymsla
Allir matarsveppir hafa takmarkað geymsluþol. Langbest er að geyma þá í myrkri
við 2°C og mikinn raka. Í mikilli birtu þroskast sveppirnir hraðar og gæðin rýrna fljótt.
Notkun
Sveppi má steikja til að bera fram með ýmsum kjötréttum, einkum þó nautabuffi,
svínalundum og svínakjöti. Allir matsveppir eru góðir í súpur og ýmsa pottrétti.
Í Sviss og Austurríki eru sveppir oft heilsteiktir í hveiti eða djúpsteiktir og
bornir fram sem forréttur með sítrónu og tartarsósu. Niðurskornir, ferskir sveppir
henta vel í salat og pítsur. Einnig er mjög gott að kryddleggja sveppi. Á þessari vefsíðu eru góðar uppskriftir af sveppum m.a. Salat með kryddjurtamaríneruðum sveppum og Sveppir með hvítlauk og kryddjurtum.
Má frysta sveppi?
Þar sem verð og framboð sveppa er tiltölulega jafnt allt árið er til lítils að
frysta þá; helst er hægt að mæla með því að fólk frysti villta matsveppi sem það
hefur sjálft tínt. Sveppir eru hreinsaðir og settir í pott án vatns og látnir
malla þar til úr þeim er farið mestallt vatnið; þá eru þeir kældir og settir í
frystipoka ásamt soðinu sem myndast við suðuna.
Hvaða hluta má borða?
Fjarlægið allar jarðvegsleifar og skolið sveppina snöggt í köldu vatni. Eftir
það má borða allt.
|
|
|
|
|
|
|
Skoðanakönnun Hvert eftirfarandi finnst þér best ? |
|
Íslenskt.is

|
|
|