|
|
|  |
|
|
| | Hvítkál |
 Besti geymsluhiti fyrir hvítkál er 0-5°C. Hvítkál getur geymst nokkuð lengi ef vel er passað upp á rétt hitastig og að
varan þorni ekki upp. Því þarf að pakka henni vel inn.
Notkun
Hvítkál er notað hrátt og smátt saxað í ýmis konar salat. Það hentar vel í súpur
og grænmetistöppu en einnig má borða það soðið eða smjörsteikt, nota það í fyllingar
eða sjóða niður. Ef það er soðið, notið þá líka ystu blöðin þar sem þau eru næringarríkust.
Sé kálið orðið slappt má gera það safaspennt á ný með því að leggja það í ísvatn
í 30 mín. og leggja síðan beint í sjóðandi vatn. Víða erlendis er algengt að búa til súrkál úr hvítkáli með því að láta það gerjast
við loftfirrtar aðstæður.
Má frysta hvítkál?
Ekki er venja að frysta hvítkál þar sem það er oftast fáanlegt allt árið, en
þó má gera það með góðum árangri. Kálið er hreinsað og stöngullinn fjarlægður.
Skerið kálið síðan í granna strimla og setjið í sjóðandi vatn í 3 mínútur. Pakkið
því í frystiumbúðir og setjið beint í frysti þegar það hefur kólnað. Athugið að
kál missir eittthvað af næringargildi sínu við suðu og bragðgæðin minnka. Súrsað
kál heldur betur bragðgæðum og næringargildi við frystingu.
Hvaða hluta er hægt að borða ?
Allir hlutar höfuðsins eru ætir nema neðsti hluti stöngulsins. Eigi að borða
stöngulinn þarf að sjóða hann í u.þ.b. 20 mínútur. Eins og áður er nefnt er næringin
aðalega fólgin í stönglinum og ystu blöðunum.
|
|
|
|
|
|
|
Skoðanakönnun Hver eftirfarandi finnst þér best ? |
|
Íslenskt.is

|
|
|