images/toplogo_3.jpg
Sendu okkur þínar uppskriftir
Gallerí
Bændur
Leitarvél:

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu
spennandi greinar,
uppskriftir, o.fl

Netfang:

Nanna
Alma Maria

 Meðhöndlun og geymsla grænmetis 


· Blómkál
· Blaðlaukur
· Gulrætur
· Gúrka
· Hnúðkál
· Hvítkál
· Íssalat
· Jarðarber
· Kartöflur
· Kínakál
· Paprika
· Rauðkál
· Rófur
· Sellerý
· Spergilkál
· Steinselja
· Sveppir
· Tómatar
Blaðlaukur
Geymsla
 
Blaðlauk á að geyma í kæli nálægt 0-2°C. Honum hættir nokkuð til að þorna og því ber að forðast að hafa hann nálægt súg. Gott er að pakka honum inn í plast til að koma í veg fyrir þornun.
 
Notkun
 
Blaðkaukur hentar vel í alla rétti þar sem gert er ráð fyrir að nota lauk, þar á meðal í salöt, súpur, pottrétti og margt fleira. Hann má sjóða í vatni eða steikja í smjöri og gufusjóða á eftir. Hæglega má nota blaðlauk sem aðalrétt, smjörsteiktan og bakaðan með skinku- eða beikonbitum og osti. Ljóst skaftið þykir ljúffengast en grænu blöðin eru næringarríkust.
 
Má frysta blaðlauk?
 
Blaðlaukur hentar afar vel til frystingar; þá er hann skorinn langsum inn að miðju, skolaður og brytjaður niður. Stærri bita er betra að snöggsjóða í 1-2 mínútur. Látið vatnið renna vel af þeim og setjið í frystipoka í hæfilegum skömmtum. Blaðlauk í strimlum eða litlum bitum sem nota á í súpur eða pottrétti er óþarfi að sjóða fyrir frystingu. Frosinn blaðlauk er best að nota í soðna rétti, en eigi að nota hann í salöt þarf að neyta hans um leið og hann þiðnar.
 
Hvaða hluta er hægt að borða?
 

Skerið burt neðstu millimetrana af skaftinu, allt annað er ætt.

Ræktun | Grænmestisdagatalið | Hollusta og næring | Meðhöndlun græmetis | Tómatategundir | Uppskriftir | Vissir þú | Árstíðarsalat | Gratín | Media | Hátíðarrauðkál

Skoðanakönnun

Hvert eftirfarandi finnst þér best ?


Sjá hér myndir tómötum
Íslenskt.is




islenskt.is | Sölufélag Garðyrkjumanna | vefstjori@islenskt.is