images/toplogo_3.jpg
Sendu okkur þínar uppskriftir
Gallerí
Bændur
Leitarvél:

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu
spennandi greinar,
uppskriftir, o.fl

Netfang:

Nanna
Alma Maria

 Meðhöndlun og geymsla grænmetis 


· Blómkál
· Blaðlaukur
· Gulrætur
· Gúrka
· Hnúðkál
· Hvítkál
· Íssalat
· Jarðarber
· Kartöflur
· Kínakál
· Paprika
· Rauðkál
· Rófur
· Sellerý
· Spergilkál
· Steinselja
· Sveppir
· Tómatar
Kínakál
Geymsla
 
Kínakál geymist frekar vel. Best er að geyma það við 0-2°C. Kínakáli er hætt við að þorna upp og er því gott að pakka því inn í plast. Kínakál sem búið er að skera niður verður ávallt að pakka inn í plast til að það þorni síður upp.
 
Notkun
 
Kínakál er mildara á bragðið og inniheldur minna af trefjum en aðrar káltegundir. Það er því gómsætara en þær og hentar betur í ýmsa hráa rétti eins og salat. Þó að kínakálið sé einkum notað í salat og aðra hráa rétti, hentar það einnig vel í súpur, ofnbakaða rétti og að sjálfsögðu í alla kínverska rétti. Kínakál má sjóða, smjörsteikja og grilla, svo eitthvað sé nefnt. minni suðu
 
Má frysta kínakál?
 
Já, skerið kálið í granna strimla og setjið í sjóðandi vatn í 1 mínútu. Pakkið því í frystiumbúðir og setjið beint í frysti þegar það hefur kólnað.
Kínakál sem hefur verið fryst þarf að nota strax eftir að það hefur þiðnað og það hentar ekki í hráa rétti þar sem það verður lint og slepjulegt við frystingu.
 
Hvaða hluta er hægt að borða?
 
Skerið ½ cm neðan af stilknum; allt annað er ætt.
 

Ræktun | Grænmestisdagatalið | Hollusta og næring | Meðhöndlun græmetis | Tómatategundir | Uppskriftir | Vissir þú | Árstíðarsalat | Gratín | Media | Hátíðarrauðkál

Skoðanakönnun

Hver eftirfarandi finnst þér best ?


Sjá hér myndir tómötum
Íslenskt.is




islenskt.is | Sölufélag Garðyrkjumanna | vefstjori@islenskt.is