images/toplogo_3.jpg
Sendu okkur þínar uppskriftir
Gallerí
Bændur
Leitarvél:

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu
spennandi greinar,
uppskriftir, o.fl

Netfang:

Nanna
Alma Maria

 Meðhöndlun og geymsla grænmetis 


· Blómkál
· Blaðlaukur
· Gulrætur
· Gúrka
· Hnúðkál
· Hvítkál
· Íssalat
· Jarðarber
· Kartöflur
· Kínakál
· Paprika
· Rauðkál
· Rófur
· Sellerý
· Spergilkál
· Steinselja
· Sveppir
· Tómatar
Blómkál
Geymsla
 
Blómkál geymist langbest við 0-2°C og við réttar aðstæður getur það geymst í nokkuð langan tíma. Það má ekki vera þar sem sterkt ljós er né dragsúgur. Einnig verður að passa mjög vel að það standi ekki nálægt öðru grænmeti né ávöxtum því blómkál er mjög viðkvæmt fyrir etýlen (etýlen er lofttegund sem myndast í grænmeti og ávöxtum og framkallar oft beiskt bragð).
 
Notkun
 
Nota má blómkál ósoðið í flesta salatrétti. Höfuðið má sjóða í heilu lagi eða brjóta það í „blómvendi“ áður en það er soðið. Vatnið á að sjóða í 10-12 mínútur áður en blómkálið er sett út í; lengd suðutímans er reyndar nokkuð háð smekk. Eigi að baka kálið í ofni ætti ekki að sjóða það lengur en í 10 mínútur. Ofnbakað blómkál með niðurskorinni papriku, skinku og ostasósu er ódýr aðalréttur sem fljótlegt er að útbúa og hentar við ýmis tækifæri. Blómkál er einnig gott í súpu, kássur og bakað eggjafrauð („suffle“). Á vefsíðu þessari eru nokkrar góðar blómkálsuppskriftir. Þessi er sérstaklega ljúffeng. Sjá uppskrift. –
 
Má frysta blómkál ?
 
Já, með góðum árangri, og það borgar sig að kaupa mikið af blómkáli þegar verðið er lágt og frysta til vetrarins. Kálið er hreinsað, skorið í „vendi“ og snöggsoðið fyrir frystingu. Einnig ætti að nota hrein, græn blöðin sem umlykja höfuðið en þau þarf líka að snöggsjóða fyrir frystingu. Fryst mlómkál hentar aðeins í soðna rétti eða ofnrétti. Ekki þarf að þíða blómkálið fyrir matreiðslu, takið það úr frystinum og setjið beint í sjóðandi vatn.
 
Hvaða hluta er hægt að borða ?
 

Borða má alla hluta blómkálsins.

Ræktun | Grænmestisdagatalið | Hollusta og næring | Meðhöndlun græmetis | Tómatategundir | Uppskriftir | Vissir þú | Árstíðarsalat | Gratín | Media | Hátíðarrauðkál

Skoðanakönnun

Hvert eftirfarandi finnst þér best ?


Sjá hér myndir tómötum
Íslenskt.is




islenskt.is | Sölufélag Garðyrkjumanna | vefstjori@islenskt.is