 Í vistvænni framleiðslu er áhersla lögð á gæðastýringu og eftirlitskerfi til
að tryggja uppruna og eldi búfjár og ræktun nytjajurta þannig að afurðirnar uppfylli
kröfur sem gerðar eru til vistvænna landbúnaðarafurða. Framleiðslan skal samræmast
góðum búskaparháttum og markmiðum sjálfbærrar þróunar í landbúnaði.
Tryggja skal öflun góðs neysluvatns, örugga meðferð sorps og frárennslis svo
og aðrar mengunarvarnir og góða umhirðu við framleiðslu landbúnaðarafurða.
Við ræktun nytjajurta og afurða þeirra skal notkun áburðar, lyfja eða varnarefna
vera í samræmi við viðurkenndar reglur um hreinleika og hollustu afurða og verndun
umhverfis og í samræmi við ákvæði í viðaukum fyrir einstakar afurðir.
Afurðir nytjajurta skulu merktar einstökum framleiðendum í gegnum vinnslu og
dreifingu. Ekki er leyfilegt að markaðssetja sömu grænmetistegund bæði undir merkjum
vistvænnar og hefðbundinnar ræktunar.
Hver framleiðandi og afurðastöð sem óskar eftir viðurkenningu skal sækja um hana
til viðkomandi búnaðarsambands sem felur eftirlitsaðila að framkvæma úttekt á
framleiðsluaðstöðu umsækjanda. Eftirlitsaðilar skulu eigi sjaldnar en einu sinni
á ári gera úttekt hjá framleiðendum og afurðastöðvum sem hafa hlotið viðurkenningu
á aðstöðu þar með talið landgæðum og búnaði til framleiðslu og vinnslu. Komi í
ljós við skoðun eftirlitsaðila að framleiðandi/afurðastöð hefur gerst brotleg
við ákvæði reglugerðarinnar skal viðkomandi veittur fjögurra vikna frestur til
úrbóta. Hafi úrbótum að þeim tíma liðnum ekki verið lokið að mati eftirlitsaðila
skal viðurkenning hans afturkölluð. Plöntuvernd skal grundvallast á lífrænum vörnum
og fyrirbyggjandi aðgerðum eftir því sem tök eru á.
Vinna skal sérstaka áætlun varðandi áburðargjöf, sem tekur mið af þörfum viðkomandi
plantna. Öll frávik skal skrá og rökstyðja. |