images/toplogo_3.jpg
Sendu okkur þínar uppskriftir
Gallerí
Bændur
Leitarvél:

Skráðu þig á póstlistann
og fáðu
spennandi greinar,
uppskriftir, o.fl

Netfang:

Nanna
Alma Maria

 Allar tegundir | Salöt og súpur | Súpur | Heitir réttir | Ofnréttir | Partýbakkar 


Kjúklingasúpa með papriku og káli


Kjúklingabringurnar skornar í þunnar sneiðar þvert yfir. Olían hituð í potti og laukur og hvítlaukur látinn krauma í nokkrar mínútur án þess að brúnast. Paprikurnar settar út í og látnar krauma í nokkrar mínútur í viðbót. Vatninu hellt yfir og hitað að suðu. Grænmetis- eða kjúklingakrafti og engifer hrært saman við og kryddað með pipar og salti. Látið malla í 6-8 mínútur. Þá eru kjúklingasneiðarnar settar út í og síðan spergilkál, blómkál og hvítkál. Hitað að suðu og látið malla í 5-6 mínútur, eða þar til kálið er meyrt og kjúklingurinn soðinn í gegn. Súpan bragðbætt með sítrónu- eða límónusafa, pipar og salti eftir smekk og dálítilli steinselju e.t.v. hrært saman við.
Gefðu þessari uppskrift einkunn
2 kjúklingabringur
1 ½ msk olía
1 laukur, saxaður
1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
2-3 paprikur, gjarna mismunandi litar, fræhreinsaðar og skornar í bita
1 l vatn
1 msk grænmetis- eða kjúklingakraftur
2-3 cm bútur af engifer, smátt saxaður
nýmalaður pipar
salt
150 g spergilkál, skipt í kvisti
150 g blómkál, skipt í kvisti
150 g hvítkál, skorið í mjóar, stuttar ræmur
sítrónu- eða límónusafi
söxuð steinselja (má sleppa)
Ræktun | Grænmestisdagatalið | Hollusta og næring | Meðhöndlun græmetis | Tómatategundir | Uppskriftir | Vissir þú | Árstíðarsalat | Gratín | Media | Hátíðarrauðkál

Skoðanakönnun

Hver eftirfarandi finnst þér best ?


Sjá hér myndir tómötum
Íslenskt.is




islenskt.is | Sölufélag Garðyrkjumanna | vefstjori@islenskt.is