|
|
|  |
|
|
|  | Tómatbrauð
Það má alveg kalla þetta pizzu en reyndar er þetta fremur brauð bakað með tómatáleggi. – Vatnið sett í skál, geri og hunangi blandað saman við og látið standa í nokkrar mínútur. Þá er olíu og salti blandað saman við og síðan hveitinu smátt og smátt, þar til deigið er vel hnoðunarhæft en þó fremur lint. Hnoðað vel og síðan látið lyfta sér í um 1 klst. Þá er deigið hnoðað aftur smástund og síðan flatt eða teygt út í kringlótt brauð, þykkast út við kantana. Pestóinu smurt á miðjuna. Tómatarnir skornir í 1-1½ cm þykkar sneiðar (gott að kreista svolítið af safanum úr hverri sneið) og raðað ofan á. Ólífum og söxuðu óreganói dreift yfir. Ostarúllan klipin í bita og þeim dreift yfir og að lokum er rifna ostinum stráð yfir. Látið bíða á meðan ofninn er hitaður í 220°C. Brauðið er svo bakað í um 20 mínútur, eða þar til það hefur lyft sér vel og tekið góðan lit og osturinn er gullinbrúnn. Brauðið er best volgt en það má líka borða það kalt Gefðu þessari uppskrift einkunn
Þessi uppskrift hefur fengið 4 stjörnur að meðaltali
|
300 ml vatn, ylvolgt 1 msk þurrger 1 tsk hunang 2 msk olía 1 ½ tsk salt um 450 g hveiti (eða eftir þörfum) 4 msk rautt pestó 6-800 g tómatar, gjarna plómutómatar 20 ólífur, steinlausar 1 msk ferskt óreganó eða 1 tsk þurrkað 1 ostarúlla með beikon- og paprikublöndu frá Ostahúsinu 100 g rifinn ostur
|
|
|
|
|
Skoðanakönnun Hver eftirfarandi finnst þér best ? |
|
Íslenskt.is

|
|
|