Hvítkálssalat
Með eplum og sinnepssósu
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir
Innihaldslýsing:
1/2 hvítkálshöfuð, meðalstórt
1 grænt epli
1 msk Dijon sinnep
2 msk rauðvínsedik
Nýmalaður pipar
Salt
5 msk ólífuolía
Leiðbeiningar:
Hvítkálið skorið í fjórðunga, stilkurinn fjarlægður og kálið síðan skorið í þunnar ræmur.
Eplið kjarnhreinsað og skorið í litla bita.
Sinnep, edik, pipar og salt hrært saman í stórri skál og olíunni þeytt saman við smátt og smátt.
Eplabitarnir settir út í og velt upp úr sósunni og síðan er kálið sett út í og blandað þar til það er þakið sósu.
Salatið hentar vel með lamba- og svínasteik, fuglakjöti, villibráð o.fl.