Gúrkusalsa

Með tómat og papriku

Höfundur: Nanna Rögnvaldar

Innihaldslýsing:
  • 1 stór íslensk gúrka
  • 3 íslenskir tómatar, þroskaðir
  • 1 lítill rauðlaukur
  • 1/2 græn íslensk paprika
  • 1/4 gul eða rauð íslensk paprika
  • 1 sítróna
  • 3 msk ólífuolía
  • 1/2-1 steinseljuknippi, saxað
  • 3-4 msk graslaukur, saxaður (má nota vorlauk)
  • 3/4 tsk nýmalaður pipar, 
  • Salt
Leiðbeiningar:

Gúrkan skorin í litla teninga.

Tómatarnir skornir í helminga, fræin skafin úr þeim með skeið og þeir síðan skornir í teninga.

Rauðlaukurinn skorinn í litla bita og paprikurnar fræhreinsaðar og skornar í teninga.

Öllu blandað saman í skál. Safinn kreistur úr sítrónunni og hristur saman við olíu, steinselju, graslauk, pipar og salt.

Hellt yfir grænmetið og blandað vel. Látið standa nokkra stund.

Borið fram t.d. sem meðlæti með grillmat eða steiktu kjöti eða fiski.