Smjörsteiktir sveppir

Hvítlaukur og rósmarín

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 750 g sveppir

  • 75 g smjör

  • 1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt

  • Söxuð blöð af 1 rósmaríngrein

  • 2-3 timíangreinar eða 1/2 tsk þurrkað timían

  • Nýmalaður pipar

  • Salt

  • steinselja

Leiðbeiningar:

Sveppirnir skornir í helminga eða fjórðunga eftir stærð.

Smjörið brætt á pönnu og sveppirnir látnir krauma í því við rúmlega meðalhita ásamt hvítlauk og kryddjurtum.

Kryddað með pipar og salt eftir smekk.

Þegar sveppirnir eru tilbúnir er hnefafylli af saxaðri steinselju stráð yfir og hrært.