Taktu fram hjólið

Er hjólið þitt rykfallið?

Er hjólið þitt rykfallið í hjólageymslunni? Í flestum hjólageymslum úir og grúir af
hjólum sem hafa ekki verið hreyfð svo árum skiptir. Er þitt hjól þar á meðal?

Það er ekkert sem stoppar okkur í að taka fram hjólið. Um leið og við erum búin að hjóla nokkur hundruð metra er hitinn kominn í kroppinn.  Nú er bara að pumpa í dekkin, smyrja keðjuna og drífa sig af stað.

Að hjóla í vinnuna er mjög góð hreyfing. “Ég hef engan tíma til að hjóla í vinnuna, það tekur hátt í klukkutíma”. Þú þarft jú að leggja fyrr af stað í vinnu en kemur miklu hressari á staðinn. Önnur afsökun getur verið sú að þú svitnir við hreyfinguna og vilt ekki vera angandi í vinnunni. Sumir vinnustaðir státa sig af því að hafa sturtu á staðnum en annars er bara um að gera að hjóla bara rólega til að svitna sem minnst. Svo er bara að hafa aukaföt í töskunni. Mjög margir búa í innan við fimm kílómetra fjarlægð frá vinnustað sínum. Fyrir það fólk er kjörið að nota þessa góðu hreyfingu og þó að það sé jafnvel lengra.

Lengi hefur verið kvartað yfir lélegum samgöngum fyrir hjólreiðafólk í Reykjavík og nágrenni og örugglega víðar um land.  Töluvert hefur verið gert á undanförnum misserum til að bæta aðstæður fyrir hjólreiðafólk en margt má auðvitað miklu betur fara. Það þýðir samt ekki að sitja heima og bíða eftir því að það verði komnir hjólastígar um alla borg. Þangað til verðum við að nota göngustígana og fara varlega.

Með því að nota hjólið í stað þess að fara í leikfimi eftir vinnu ertu að spara tíma. Þú ert jú lengur að hjóla heldur en að fara á bílnum en sleppir þá við þann tíma sem tekið hefði að fara í leikfimi. Einnig er gott að blanda þessu saman. Nota hjólið suma daga og stunda aðra hreyfingu hina dagana. Það er einhvern veginn skemmtilegra að nota sumarið og hreyfa sig úti frekar enn að vera inni í leikfimissalnum.
Hjólið sparar ekki bara tíma heldur líka pening. Með því að geyma bílinn heima sparast jú bensínið.
Hvernig væri að byrja að minnsta kosti á því að hjóla í vinnuna tvisvar í viku.

Það er erfitt fyrst að drífa sig af stað en eftir nokkur skipti er þetta orðið sjálfsagt mál og maður skilur ekkert í því hvers vegna maður byrjaði ekki fyrr. 🙂