Jarðarberjatrifli

Með mascarpone rjóma

Höfundur: Nanna Rögnvaldar

Innihaldslýsing:
  • 250 g mascarpone-ostur

  • 250 ml rjómi

  • 4 msk flórsykur, eða eftir smekk

  • 1 tsk vanillusykur

  • 3 msk jarðarberjasulta

  • 1 pakki fingurkex (ladyfingers) eða makrónukökur

  • Sætt sérrí eða appelsínusafi

  • 250 g íslensk jarðarber

Leiðbeiningar:

Mascarpone-osturinn tekinn úr kæli og látinn mýkjast.

Rjóminn stífþeyttur. Mjúkum ostinum hrært saman við og bragðbætt með flórsykri og vanillusykri eftir smekk.

Blöndunni skipt í tvennt og jarðarberjasultu hrært saman við helminginn.

Fingurkexið brotið í bita (ekki mulið) og sett á botninn á 6 ábætisglösum.

Bleytt í með svolitlu sérríi eða appelsínusafa.

Jarðarber söxuð og dreift yfir.

Kúfaðri skeið af jarðarberjakreminu jafnað yfir og síðan er kúfuð skeið af hvíta kreminu sett ofan á.

Jarðarberin sem eftir eru skorin í helminga og dreift yfir.