Jarðaberjaplönturnar eru jurtkendar fjölærar plöntur. Plöntunum er fjölgað með græðlingum og þær oftast ræktaðar í eitt ár áður en þær fara að gefa ber. Blómgreinar eru lagðar á strengi svo þær brotni ekki af plöntunni, berin geta verið mörg og þung á hverri blómgrein.
Notaðar eru býflugur til að frjóvga blómin og ýmis nytjadýr til að halda niðri meindýrum.
Berin eru brotin af greinunum. Fræin liggja í ysta lagi bersins. Berin eru tínd daglega á uppskerutíma. Berjatínsla byrjar í maí tínt er fram í september og jafnvel fram í október
Jarðarber geymast í 5 - 7 daga. Kjörhiti er 4 - 8°C.
Berin geymast vel í frysti.
Jarðarber eru góð fersk í salatið, með kökunni, ísnum og rjómanum og ekki síst í bústið ýmist fersk eða frosin. Eða bara ein og sér. Svo má ekki gleyma að jarðarber eru afargóð í sultu.
Best er að borða þau ekki beint úr kæli, þau eru bragðsterkari ef þau eru ekki of köld.
alla hluta
Ætur hluti 95 %
|
|
Innihald í 100 g |
|
Vatn 90 g
|
|
Orkurík efnasambönd |
|
Prótein 0.9 g
|
Trefjar 2.2 g
|
Kolvetni 8.4 g
|
Fita 0.2 g
|
kj 164
|
kcal 39
|
Steinefni |
|
Járn 1.0 mg
|
Kalk 30 mg
|
Vítamín |
|
A Ret. ein 5 µg
|
B1 0.02 mg
|
B2 0.03 mg
|
Niacin 0.6 mg
|
C (askorbínsýra) 66 mg
|
Í jarðarberjum er mikið af mikilvægum steinefnum, einkum járni og kalki. Þau eru hitaeiningasnauð en innihalda einnig nokkuð af A-, B- og C-vítamíni. Ofnæmi gegn jarðarberjum er þekkt hjá fólki, en komast má hjá áhrifum með því að merja berin í gegnum sigti og bæta kalki saman við maukið.