Garðyrkjustöðin varmalækur hóf ræktun á bufftómötum sumarið 2011.
Bufftómatar eru stærri og kjötmeiri en venjulegir tómatar. Ræktun þeirra er svipað og ræktun á venjulegum tómötum
Ekki er haft meira en 3-4 tómata á klassa til að fá stærri og þyngri tómata.Tómatarnir eru kjötmiklir og bragðgóðir og
Tómatar eru ákaflega viðkvæmir fyrir kæliskemmdum og þá má ekki geyma í kæli. Besti geymsluhiti tómata er 10-12°C. Tómatar sem verða fyrir kæliskemmdum verða fljótt linir og bragðlitlir, því er ekki gott að geyma þá í ísskápnum. Ekki er gott að láta tómata liggja nálægt blaðmeti (salati), gúrkum og öðrum afurðum. Mjög gott er að geyma tómata á eldhúsborðinu því þá getur heimilisfólkið nartað í einn og einn tómat. Krakkar borða grænmeti líka miklu frekar ef það er haft fyrir framan þau.
Bufftómatar eru tilvaldir á hamborgarann, á brauðið eða í pítuna.
Flestir vita hvernig nota á tómata. Þá má nota á svo margvíslegan hátt að hér er vart rými nema til að minnast á það allra helsta. Þeir henta vel í hrásalat, ofan á brauð og í súpur og sósur. Þeir eru góður hráir en einnig má sjóða þá og steikja eða baka þá með fyllingu. Margir kunna best að meta tómata í ítölsku hrásalati með söxuðum lauk og gúrkusneiðum í estragonediki sem graslauk er stráð yfir. Auðvelt er að afhýða þá þegar búið er að dýfa þeim í sjóðandi vatn í 20-30 sekúndur.
Já, en hafa verður í huga að eftir frystingu er einungis gott að nota þá í soðna rétti á sama hátt og niðursoðna tómata.
Allur tómaturinn er ætur nema bikarblöðin sem er ávallt búið að taka af íslenskum tómötum áður en þeir koma í verslanir.
Ætur hluti 100 %
|
|
Innihald í 100 g |
|
Vatn 94 g
|
|
Orkurík efnasambönd |
|
Prótein 0.9 g
|
Trefjar 1.5 g
|
Kolvetni 4.3 g
|
Fita 0.2 g
|
kj 97
|
kcal 23
|
Steinefni |
|
Járn 0.6 mg
|
Kalk 15 mg
|
Vítamín |
|
A Ret. ein 100 µg
|
B1 0.04 mg
|
B2 0,03 mg |
Niacin 0.2 mg
|
C (askorbínsýra) 20
|
Tómatar eru vítamínríkir, einkum er mikið af A- og C-vítamíni í þeim, en auk þess eru þeir ríkir af steinefnum og ávaxtasýru. Í þeim eru fáar hitaeiningar sem gerir þá upplagða sem megrunarfæði.