|
|
|  |
|
|
| | Auðsholt |
 Hjónin Vignir Jónsson og Ásdís Bjarnadóttir stunda kúabúskap á Auðsholti á Flúðum. Árið 1997 hófu þau að rækta gulrætur meðfram kúabúskapnum og framleiða nú í kringum 100 tonn á ári.
Gulræturnar rækta þau í sendnum jarðvegi á bökkum Hvítár sem er hitaður upp með heitu vatni úr borholu. Búfjáráburður er uppistaðan í áburðinum á gulræturnar og ræktunin því vistvæn. Uppskeran er tekin upp í enda júlí. Gulræturnar eru síðan geymdar ferskar í kæli fra september og yfir veturinn en þá fer fram mesta vinnan við að flokka og pakka.
Fjölskylda Vignis og Ásdísar vinnur saman við ræktunina og þegar mest er að gera og mikið liggur við, eins og á uppskerutímanum, segir Vignir stórfjölskylduna kallaða til. Kröfur íslenskra neytenda um gæði eru miklar og segir Vignir fjölskylduna leggja allt kapp á að uppfylla þær. Mikil vinna liggi á bak við hverja gulrót. Uppskeran er tekin upp með vélum og gulræturnar þvegnar. Hver gulrót er svo snyrt í höndunum, þær síðan flokkaðar og þeim pakkað í höndunum til neytenda. Frá Auðsholti fara sendingar tvisvar í viku. Í apríl er svo næstu uppskeru sáð.
Smellið á myndirnar til að stækka þær og skoða betur | |
|
|
|
|
|
|
Skoðanakönnun Hver eftirfarandi finnst þér best ? |
|
Íslenskt.is

|
|
|