|
|
|  |
|
|
| | Silfurtún |
 Í Silfurtúni á Flúðum rækta hjónin Eiríkur Ágústsson og Olga Lind Guðmundsdóttir jarðarber, tómata og rauðkál. Þau keyptu garðyrkjustöðina árið 2002 en garðyrkja hófst í Silfurtúni á sjöunda áratugnum. Eiríkur og Olga eru garðyrkjubændurnir á Íslandi sem rækta jarðarber í sölu til neytenda. Jarðarberjaræktin í Silfurtúni þekur um 4000 fermetra gróðurhúsa.
Jarðarberin eru töluvert viðkvæm í ræktun, berin eru því handtýnd og flokkuð strax í umbúðir og send samdægurs í verslanir. Hraðar hendur þarf að hafa þegar uppskerutíminn nær hámarki, sem er í lok júní og fram í júlí. Gæði og ferskleiki eru því tryggð frá Eiríki og Olgu. Yfir sumarið eru daglegar sendingar af jarðarberjum frá Silfurtúni. Ræktunin er vistvæn en býflugur sjá um að frjóvga jarðarberjablómin. Tilbúnum áburði er haldið í lágmarki og lífrænum vörnum beitt í stað lyfja.
Býflugur sjá einnig um að frjóvga tómataplönturnar en tómataræktin í Silfurtúni þekur um 1500 fermetra gróðurhúsa. Eins og í jarðarberjaræktuninni er lífrænum vörnum beitt í og eru tómatarnir handtíndir annan hvern dag. Þeir eru flokkaðir og pakkað í neytendaumbúðir sama dag og þeir eru tíndir, og sendir beint í verslanir.
Smellið á myndirnar til að stækka þær og skoða betur
| |
|
|
|
|
|
|
Skoðanakönnun Hver eftirfarandi finnst þér best ? |
|
Íslenskt.is

|
|
|