|
|
|  |
|
|
| | Blómkál |
 Geymsla
Blómkál geymist langbest við 0-2°C og við réttar aðstæður getur það geymst í
nokkuð langan tíma. Það má ekki vera þar sem sterkt ljós er né dragsúgur. Einnig
verður að passa mjög vel að það standi ekki nálægt öðru grænmeti né ávöxtum því
blómkál er mjög viðkvæmt fyrir etýlen (etýlen er lofttegund sem myndast í grænmeti
og ávöxtum og framkallar oft beiskt bragð).
Notkun
Nota má blómkál ósoðið í flesta salatrétti. Höfuðið má sjóða í heilu lagi eða
brjóta það í „blómvendi“ áður en það er soðið. Vatnið á að sjóða í 10-12 mínútur
áður en blómkálið er sett út í; lengd suðutímans er reyndar nokkuð háð smekk.
Eigi að baka kálið í ofni ætti ekki að sjóða það lengur en í 10 mínútur. Ofnbakað
blómkál með niðurskorinni papriku, skinku og ostasósu er ódýr aðalréttur sem fljótlegt
er að útbúa og hentar við ýmis tækifæri. Blómkál er einnig gott í súpu, kássur
og bakað eggjafrauð („suffle“). Á vefsíðu þessari eru nokkrar góðar blómkálsuppskriftir.
Þessi er sérstaklega ljúffeng. Sjá uppskrift. –
Má frysta blómkál ?
Já, með góðum árangri, og það borgar sig að kaupa mikið af blómkáli þegar verðið
er lágt og frysta til vetrarins. Kálið er hreinsað, skorið í „vendi“ og snöggsoðið
fyrir frystingu. Einnig ætti að nota hrein, græn blöðin sem umlykja höfuðið en
þau þarf líka að snöggsjóða fyrir frystingu. Fryst mlómkál hentar aðeins í soðna
rétti eða ofnrétti. Ekki þarf að þíða blómkálið fyrir matreiðslu, takið það úr
frystinum og setjið beint í sjóðandi vatn.
Hvaða hluta er hægt að borða ?
Borða má alla hluta blómkálsins. |
|
|
|
|
|
|
Skoðanakönnun Hvaða árstíð finnst þér skemmtilegust ? |
|
Íslenskt.is

|
|
|